Endursmíði
Eftir talsverð áföll, ýmsar tilraunir og nokkrar breytingar sem fylgja því að læra að fljúga fjarstýrðu flugmódeli er gamla Mini Super farin að láta nokkuð á sjá. Það er því kominn tími til að taka hana í "slipp", yfirfara og endursmíða ýmislegt. Tvö sjónarmið togast þar á. Annars vegar er að vera trúr upprunalegri hönnun Ernie Webster sem útfærði módelið hjá Keil Kraft og hins vegar að nota reynsluna til að endurbæta ýmsa þætti módelsins sem verða mætti til að auka flughæfni.
Niðurstaðan er sú að færa útlitið sem næst upprunalegu hönnuninni en bæta nokkra þætti sem snúa að virkni módelsins. Til að færa útlit til fyrra horfs verður módelið aftur að þríhjóla módeli með nefhjól og klæðningin verður sem líkust því sem sjá má á upprunalega kassanum sem ég á ennþá. Til að bæta virknina stefni ég að því að hafa nefhjólið stýranlegt. Þá mun ég einnig smíða nýjan væng með hallastýrum til að ná betri stjórn á fluginu. Um leið og vængurinn fær hallastýri þarf að minnka hallahorn hans svo hallastýrin virki eðlilega. Gamli vængurinn verður áfram til og því auðvelt að skipta, prófa báða og bera saman flughæfnina.
Niðurstaðan er sú að færa útlitið sem næst upprunalegu hönnuninni en bæta nokkra þætti sem snúa að virkni módelsins. Til að færa útlit til fyrra horfs verður módelið aftur að þríhjóla módeli með nefhjól og klæðningin verður sem líkust því sem sjá má á upprunalega kassanum sem ég á ennþá. Til að bæta virknina stefni ég að því að hafa nefhjólið stýranlegt. Þá mun ég einnig smíða nýjan væng með hallastýrum til að ná betri stjórn á fluginu. Um leið og vængurinn fær hallastýri þarf að minnka hallahorn hans svo hallastýrin virki eðlilega. Gamli vængurinn verður áfram til og því auðvelt að skipta, prófa báða og bera saman flughæfnina.
Hér að ofan má sjá þrjár myndir af Keil Kraft Mini Super. Sú fyrsta er af módelinu eins og það lítur út þegar endurbygging hefst haustið 2013. Búið er að breyta því í "taildragger", endurklæða neðri hluta búksins með tilfallandi klæðningarefni og víða er klæðning farin að gefa sig. Á svarthvítu myndinni í miðjunni má sjá módelið eins og það leit út hjá framleiðandanum Keil Kraft þegar framleiðsla hófst, líklega um 1960 - 65 og að lokum er mynd af kassanum sem það var selt í. Ef vel er að gáð má sjá að verðið í Tómstundahúsinu, haustið 1972 hefur verið 4.425 kr. Þetta eru að sjálfsögðu gamlar krónur, sem sagt 44 nýkrónur og 25 aurar. Það væru um 33.000 kr á núvirði miða við vísitölu neysluverðs svo ljóst er að nokkru hefur verið til kostað á sínum tíma.
Nýr vængur
Fyrsta verk er að smíða nýjan væng. Gömlu teikningarnar eru dregnar fram og skapalón af rifjunum sagað út 6 mm MDF. Balsinn keyptur í Tómstundahúsinu, rifin skorin út og vængurinn smíðaður frá grunni. Lítilega er breytt út frá teikningum til að koma hallastýrum fyrir í vængnum. Einnig er hallahorn (dihedral) vængsins minnkað um helming svo hallastýrin virki eðlilega.
Nýr vængur er nú nánast tilbúinn, tvö innbyggð servo eru nýjung en klæðningin er í samræmi við grunnlit á kassamyndinni.
Tilbúin til prufuflugs
Þá er nýr vængur með veltistýrum tilbúinn og tengdur. Nýji vængurinn er um 80 gr. þyngri en sá gamli. Það kemur ekki á óvart því auk tveggja þjóna (servó) eru veltistýrin efnismeiri en einföld vængbrún.
Næsta skref er að prófa flughæfnina áður en lengra er haldið í endurbyggingu módelsins. Nú þarf að bíða flugveðurs.
Næsta skref er að prófa flughæfnina áður en lengra er haldið í endurbyggingu módelsins. Nú þarf að bíða flugveðurs.
Smátt og smátt líkist módelið frummyndinni. Búið er að prófa fyrsta tilraunaflug með nýjan væng. Flugið tókst með ágætum. Módelið brást vel við hallastýrunum og greinilegt að breidd þeirra er alveg næg.
Nakin
Nú er komið að klössun á skrokknum. Koma þarf fyrir nýju nefhjóli með stýringu, flytja aðalhjólin á upprunalegan stað og laga það sem farið er að brotna.
Skrokkurinn er nú strípaður og niðurrifinu lokið. Næst er að hefja uppbygginguna. Fyrst er að smíða nýtt hliðarstýri þar sem það gamla var bæri skakkt og brotið.
Komin á fætur, aftur orðin þríhjóla
Nú er stýrið komið á sinn stað, hjólastellið búið að fá nýja staðsetningu og búið að koma hreyfanlegu nefhjóli fyrir.
Það kostaði töluverðar pælinar að búa til stangir og liðamót til að tengja nefhjólið við servóið sem stjórnar hliðarstýrinu. Það er afar mikilvægt að gæta að fríhlaupi í hverjum lið þegar þeir eru orðnir margir. Frá nefhjóli að stýri eru sex liðir svo ekki má vera mikið hlaup í hverjum ef vel á að vera.
Gamli mótorinn
Eg ákvað að setja upphaflega mótorinn aftur í módelið. Það er .20 Graupner tvígengismótor sem keyptur var 1973. Hann er um 30% stærri en sá mótor sem verið hefur í módelinu undanfarið. Annar munur er sá að ekki er gert ráð fyrir að þrýstingur frá hljóðkútnum sé leiddur inn í eldsneytistankinn. Í fyrstu fannst mér þetta engu breyta þar sem mótorinn er hannaður til að draga til sín það eldsneyti sem þarf. En þegar betur er að gáð þarf nú að búa til loftun á eldsneytistankinn svo ekki myndist undirþrýstingur í honum þegar gengur á eldsneytið. Haga þarf loftuninni þannig að ekki tapist eldsneyti þó módelið halli eða sé flogð á hvolfi. Eins gott að muna eftir þessu.
Byggja þarf upp nýjan framhluta á módelð. Hver kubburinn af öðrum af massívum balsa er límdur við módelið og að lokum verður nefð tálgað í það lag sem óskað er eftir.
Nú er trýnið komið með sitt lag og módelið tekur æ meiri svip af frummyndinni. Nú er hægt að kanna þyngdarpunktinn og ákveða staðsetningu rafhlöðunnar. Líklega hentar best að hafa hana framarlega.
Næsta verk er að klæða búkinn. Ég byrja á botninum.
Í gluggunum er glært plast en formið á þeim er myndað með klæðningunni. Til að gera það er fyrsta verk að klippa gluggaformið út úr pappír og líma það á réttan stað á gluggann. Ég klippti gat í miðann og festi hann svo með límbandi.
Síðan klæddi ég allan flötinn..
Að lokum skar ég svo göt í klæðninguna.
Þá er endursmíði Mini Super lokið. Til vinstri er fyrirmyndin af kassanum eins og Ernie Webster setti á markað skömmu eftir miðbik síðustu aldar og til hægri er eftirmyndin rúmum 50 árum síðar. Nú er bara að bíða eftir flugveðri til að prófa flughæfni módelsins (og flugmannsins).