Módelið var smíðað veturinn 1972 - 3 og frumflogið vorið 1973. Í flugtaki rofnaði vír frá rafhlöðuhylki og módelið endaði á húsvegg.
Að viðgerð lokinni fékk stóri bróðir að reyna sig. Módelið reyndist ansi vakurt og þegar gleymdist að minnka vélarafl lenti það með 90° aðflugshorni. Liklega um 1975.
Módelið var enn endurbyggt. Þessi mynd er tekin um 1980. Sami mótor er enn í módelinu. Gerð var enn ein tilraun sem endaði með brotlendingu. Sú var reyndar minniháttar í samburði við þær fyrri.
Skipt var um mótor um leið og þriðja endurbygging fór fram.
Milli 1980 og 90 var módelinu flogið einu sinni með "óverulegri" brotlengu.
Skipt var um mótor um leið og þriðja endurbygging fór fram.
Milli 1980 og 90 var módelinu flogið einu sinni með "óverulegri" brotlengu.
Uppfærsla
Vorið 2013 var skipt um fjarstýringu. Futaba 27MHz FM stöðin tekin úr og Futaba 6J, 2,4GHz, sett í hennar stað. Rúmlega 30 ára aldursmunur. Tækni og hönnun fjarstýringa hefur farið talsvert fram.
15. maí 2013 var gömlu Mini Super flogið enn á ný eftir nokkurt hlé. Fyrstu þrjár tilraunir til flugtaks fóru út um þúfur því módelið virtist halda að það væri bíll og æddi bara um flugbrautina fram og aftur. Að lokum fjarlægði ég blýið sem vinur minn ráðlagði mér að hafa í nefinu (á módelinu, þ.e.a.s.) og viti menn - Mini Superinn flaug eins og engill. Að lokum var komið að lendingu sem tókst í öðru aðflugi. Módelið lenti á öllum þremur hjólunum og hélt sig á þeim allt til enda, í fyrsta sinn í 40 ár. Líkur eru á að tilkoma flugherma hafi haft nokkuð að segja um aukna flughæfileika flugmannsins.
Þó flugmanninum hafi farið mikið fram kom að því að hjólafestingar gáfu sig í harðri lendingu við erfið veðurskilyrði.
Ég notaði tækifærið og flutti hjólin fram um tvær tommur og setti spennu úr stálvír undir stélið. Nú er Mini Superinn orðinn taildragger. Það verður spennandi að sjá hvernig það reynist.
Ég notaði tækifærið og flutti hjólin fram um tvær tommur og setti spennu úr stálvír undir stélið. Nú er Mini Superinn orðinn taildragger. Það verður spennandi að sjá hvernig það reynist.
Þar sem hliðarstýrið á Mini Super er einstaklega smátt er erfitt að stýra henni á flugbraut í flugtaki. Eftir að mörg flugtök höfðu farið forgörðum vegna þess að módelið fór út af flugbrautinni í flugtaki, lengdi ég stélvírinn um 20 cm. Eftir þetta hélt módelið stefnunni í flugtaki miklu betur.
Haustið 2013 var módelið enn endurbyggt. Nú var ástæðan þó ekki brotlending heldur var komið að viðhaldi á 40 ára gömlu módeli.
Tvennt var lagt til grundvallar í endursmíðinni. Í fyrsta lagi skyldi færa útlitið sem næst því sem upphafleg hönnun Ernie Webster gerði ráð fyrir. Í öðru lagi skyldi endurbæta virkni módeldsins eftir því sem kostur væri. Útlitið má sjá á myndinni hér til hliðar. Helstu þættir í bættri virkni voru að setja tvö vængservó og hallastýri í vænginn, nýtt nefhjól með beygjum, tengt hliðarstýri og stækka hliðarstýrið nokkuð. Þá var upphaflegi mótorinn aftur settur í módelið, Graupner 0.20. Nánar má lesa um endurbygginguna hér!

Hér er Mini Super svo komin í kuldaskóna.
Hér má svo sjá video af vetrarflugi í janúar 2015.
Þar sem tökumaður og flugmaður er sá sama kom það talsvert niður á myndatökunni.
Þar sem tökumaður og flugmaður er sá sama kom það talsvert niður á myndatökunni.
Í águst 2016 var kennslubúnaður settur í gamla Mini Superinn og fyrsti flugneminn tekinn í flugtíma.
Búnaðurinn sem settur var í módelið var annars vegar:
Wireless Buddy Box System og hins vegar viðbótarfjarstýring:
HobbyKing HK6S 2.4Ghz FHSS 6Ch Tx & Rx.
Búnaðurinn fékkst hjá Hobby King á afar góðu verði og reyndist einstaklega vel í flugtímanum.