Flite Test Old Fogey
Gamli Fogey er eitt af skiptimódelum (swapables) sem Flite Test hefur hannað og dreift teikningum af. Þegar búið er að smíða eitt skiptimódel er freistandi að smíða fleiri. Skiptimódelin eru þannig hönnuð að með örfáum handtökum er hægt að flytja vélarúmið (power pod) frá einu módeli til annars. Mótor, hraðastýring, rafhlaða og móttakari fylgja vélarrýminu og því hægt að margnýta þessa hluti.