Ég nota gamlan mótor OS 15FP sem ég var með í Mini Super módelinu. Hann reyndist heldur lítill í Mini Superinn en er stærri valkosturinn í Mini Jazz módelið. Mótorinn var keyptur í lítilli módelbúð í Kaupmannahöfn í kringum 1980.
Þegar ég pantaði íhlutina hjá Pegasus Models gelymdi ég að panta mótorfestingu. Ég sendi þeim support ticket og bað um að mótorfestingu fyrir OS 15 yrði bætti við. Þeir brugðust vel við og gáfu mér festinguna í kaupbæti. Óvanalega persónuleg þjónusta á Pegasus Models.
Rafhlaðan er 800 mAh, "Sanyo Eneloop 800 AAA 4.8v Receiver Flat"
Móttakarinn er Futaba R2006GS 2.4GHz að venju.
Maxi-Tank (Square/Blue) - 120cc/4oz. 4 oz tankur gefur talsvert flugþol með 0.15 mótor.
Switch JR Type Professional Heavy Duty external charge socket. Þessi rofi er með skemmtilegu ljósi og hleðslutengingu sem er mjög handhæg. Hann er hins vegar svolítið stór á svo lítið módel.
Hjólin eru af sömu stærð og teikningin segir til um, 38 mm, en ég ákvað að bæta stélhjólinu við og valdi 19 mm hjól til þess
Mér fellur best að nota fiberlamir sem límdar eru í stýrifleti með CA lími og held mig við það á þessu módeli.
Spinnerinn er hvítur 45 mm Irvine spinner á álplötu. Álplatan gerir þá trausta og plastið er sterkt.
Servoin eru 9 gr miniservó ýmist frá Hobby King eða dx.com. Þetta eru einföld servó af ódyrustu gerð, vonandi klikka þau ekki á ögurstundu.
(Viðbót: En það var einmitt það sem gerðist, rudderservóið strippaði í flugtaki. Ég slapp þó með skrekkinn og setti metal gear servó í staðinn. Ég mæli með metal gear á rudderservóið því af stélhjólinu er liklega nokkuð álag í flugtaki.)
(Viðbót: En það var einmitt það sem gerðist, rudderservóið strippaði í flugtaki. Ég slapp þó með skrekkinn og setti metal gear servó í staðinn. Ég mæli með metal gear á rudderservóið því af stélhjólinu er liklega nokkuð álag í flugtaki.)