Þá er komið að næsta módeli. Fyrir valinu varð pappamódel, smíðað úr sama efni og Nighthawk FF117 sem lesa má um á þessum vef.
Hugmyndin er að smíða Spitfire, rafmótorsmódel að hætti FliteTest.com.
All ítarlegt myndband af slíkri smíði má sjá á slóðinni:
http://flitetest.com/articles/ft-spitfire-build
Teikningar má einnig nálgast á sama vefsvæði:
http://www.stonekap.net/ftplans/FT-spitfire-plans.pdf
og
http://www.stonekap.net/ftplans/FT-SPITFIRE-TILED-PLANS.pdf
Nánari upplýsingar um verkefnið og má sjá undir hliðarvalinu "Smíðin" við "Spitfire" valið hér til hliðar.

Niðurstaða, nokkrum mánuðum síðar:
Á fallegu föstudagskvöldi í mars var logn og blíða á Bakkanum og komið að því að frumfljúga módelinu. Ég skaust því út á völl á Eyrarbakka með Spitfire-pappamódelið. Það var bæði spennandi, skemmtilegt og lærdómsríkt.
Ég lærði hvernig afturþung lágþekja hagar sér. Vélaraflið var nægilegt en þar sem módelið leitaði alltaf upp náði ég ekki hraða en var nær því að hovera og stalla vélinni um leið, - sem leiddi til þess að ég flaug í hringi með nefið upp í loft.
Ég lærði líka að 2700 kv mótor og 3S batterí með 8*4 propp geta haldið 1.000 gr módeli á lofti í nokkurn tíma, jafnvel í hover, en 40 Amp ESC þolir ekki slíkt álag.
Ég lærði að það er ferleg fýla af steiktu ESC.
Að lokum lærði ég að sjórinn við Eyrarbakka er ekkert voða kaldur en fer ekki vel með skóna.
En þrátt fyrir að Spitfire módelið mitt hafi fengið nokkuð snöggan endi var smíði þess og flug bæði skemmtilegt, spennandi og lærdómsríkt - og hvers getur maður óskað frekar af góðu áhugamáli.