Sig Somthin Extra í smíðum. Stefnt á frumflug haustið (2019) eða 2020.
Nú er búkurinn að verða klár.
Í leiðbeiningunum er gert ráð fyrir að efri hlutinn sé klæddur beint á listana og enginn annar stuðningur sé við klæðninguna. Sumum finnst það galli á módelinu og vilja klæða undir klæðningun með balsa.
Ég fór milliveginn og setti fyllingar við böndin til að styðja við klæðninguna. Ekki er gott að segja hvernig það kemur út fyrr en módelið verður klætt.
Í leiðbeiningunum er gert ráð fyrir að efri hlutinn sé klæddur beint á listana og enginn annar stuðningur sé við klæðninguna. Sumum finnst það galli á módelinu og vilja klæða undir klæðningun með balsa.
Ég fór milliveginn og setti fyllingar við böndin til að styðja við klæðninguna. Ekki er gott að segja hvernig það kemur út fyrr en módelið verður klætt.
Þá er flugmaðurinn mættur og búið að loka sjórnklefanum. Dóttursonurinn þekkti kappann og sagði mér að hann héti Toothless. Ég sleit hann af pez-skammtara án þess að spyrja að nafni.
Nú er komið að klæðningu og fyrstu litir farnir að sjást.
Þá eru servoin komin á sinn stað og tengd við stýrifletina. Barkarnir sem fylgdu kittinu voru ekki í lagi og stóðu fastir. Í þeirra stað notaði ég afgagnsbarka sem ég átti frá öðru SIG kitti. Eftir á að hyggja hefði ég kannski bara á að kaupa alveg nýtt sett af börkum og tengistykkjum. Þau sem fylgja kittinu eru ekkert til að hrópa húrra fyrir.
Ég notaði ekki tengistykkin sem fylgdu mótorbarkanum heldur hefðbundið tengistykki eins og sést á myndinni. Kittinu fylgdi nylontengi sem mér leist ekki alveg á. Blindrærnar sem fylgja settinu og fara innan á eldvegginn eru ekki úr nægilega góðu efni og forskrúfast auðveldlega. Ég mæli með að skipta þeim út.
Það er ekki alveg vandlaust að koma rofanum fyrir, sérstkalega vegna þess að ég vildi hafa rofa með hleðslutengi og ljósi. Ég endaði með að setja hann á botn módelsis u.þ.b. tommu fyrir aftan hjólastell. Ég styrkti botnin þar með því að líma 0,8 mm krossviðsþynnu á hann innanverðan.
Nú er vélbúnaðurinn kominn á sinn stað og tengdur við stýrifleti. Á endandum keypti ég Sullivan barka (snáka) og henti þeim sem fylgdu kittinu. Næst þarf að huga að því að klára klæðninguna.
Smátt og smátt silast módelsmíðin áfram og módelið tekur á sig lokaútlit. Líklega frestast þó frumflugið fram á árið 2021. SIG lamirnar sem fylgja settinu eru ekki góðar og ég mæli með að kaupa betri CA-límlamir og nota í þeirra stað.
Nú er allt að verða klárt. Næst er að stilla færslu stýriflatanna og tilkeyra mótorinn. Að því loknu þarf bara að safna kjarki til að fara út á völl.