Íhlutir
Mest af íhlutunum keypti ég hjá Pegasus Models í Bretlandi en annað í Tómstundhúsinu. Vefurinn hjá Pegasus Models er góður og þjónustan frábær. Þegar þú ert búinn að stofna eigin aðgang getur þú pantað, sett saman óskalista og fengið svör við flestu sem þér dettur í huga að spyrja um á "support-flipanum" þar sem þú getur spurt prívat spurninga og fengið prívat svör. Sjá nánar: Pegasus Models
Mótor, skrúfa og spinner
Ég valdi .61 cu in mótor frá SC. Hann er með tvær legur og fékkst á mjög góðu verði. (SC61A-S Aero RC ABC(Rear Needle))
Skrúfan sem ég valdi er frá Master Airskrew 13x6, K-series, sem mér sýnist að henti þessum mótor og módeli. (Pantaði tvö stk. vegna fyrri reynslu :-))
Spinnerinn er 63 mm Irvine Spinner. Hann er á álplötu sem er nægilega þunn til að rúmast vel á ásnum án þessa að takmarka festu fyrir aðalróna.

Tankurinn
Leiðbeiningarnar mæltu með 12 oz tanki og mér sýnist að það sé Dubro tankur sem er fyrirmyndin á teikningunum. Ég skoðaði málin á 14 oz tanki frá Dubro og sýndist að hann kæmist vel fyrir. Leiðbeiningarnar gera ráð fyrir að tankinum sé komið fyrir seint í smíðinni. Ég pantaði hins vegar 14 oz tankinn og setti hann í módelið áður en ég lokaði húddinu. Það gekk vel og vandræðalaust.
Hjólin
Tvö 3" og eitt 1" stélhjól frá Dubro
Fjarstýring og servo
Supportgengið hjá Pegasus Models mælti með Futaba 6J.
Ég er sammála þeim - fín fjarstýring á góðu verði.
Innbygða loftnetið er ótrúlega þægilegt.
Þessu setti fylgdi ókeypis auka móttakari.
Hann nýttist í Mini Superinn.
Ég notaði standard Futaba servó, S3003. Keypti 8 stk svo ég hafi nóg í Mini Superinn líka.
Móttakarinn er R2006GS

Rafhlaðan
2300 mAh Overlander rafhlöðupakki sem supportgengið hjá Pegasus mælti með virkar fínt til að knýja servóin og móttakarann.