Fyrsta verk er að prenta út teikningarnar og líma þær saman eins og fyrirmælin segja til um. Þá er bara að skera alla hluti út úr frauðkartoninu. Tvær plötur duga fyllilega í alla hluti. (Sjá íhlutalista) FF117 build
Þegar búið er að skera út og skera raufir í brotalínur er bara að púsla saman og líma með hitalími.
Lokið yfir tæknirýmið er fest með límbandi sem myndar löm um leið. Ég keypti sterkt límband með styrktarþráðum til að nota í módelið. Skera þarf nokkuð mikinn fláa á brúnirnar svo lokið falli vel. Ég opnaði líka meira milli hæða í tæknirýminu svo ég gæti komið hraðastýringunni fyrir í miðrými og hefði góðan aðgang að henni. Mótortengi var svo límt þar aftast svo auðvelt sé að tengja og aftengja mótorinn. Mótorfestingin er balsakubbur sem er tryggilega festur með álímdum hliðum úr 1,5 mm krossviði. Allt er það límt saman og á staðinn með Epoxy-lími.
Fjórir litlir seglar halda lokinu aftur. Voltmælirinn er festur með límbandinu innanfrá
Ég skar mjóa reninga af límbandinu til að leggja yfir og fela hitalímið. Módelið fær á sig svolítið "smoking-look" fyrir vikið.
Til að festa stýrifletina notaði ég pakkbönd frá síðustu jólum. Skar rauf í strýiflötinn og vænginn og límdi sex búta í raufina með Griplími.
Mundu að gefa nægilegt rými til að stýriflöturinn geti hreyfst eðlilega.
Þá er að koma þjóninum (servóinu) fyrir á sínum stað. Ég skar úr hliðarstykkinu fyrir honum og límdi hann með hitalími á sinn stað.
Gættu þess vel að ás þjónsins sé samsíða brotlínu stýriflatarins.
Þá er að finna öllu stað, framlengja víra og skera lagnaleiðir í frauðkartonið þar sem hentar.
Þegar búið er að líma hliðarstýrin á og ál-límband á glugga stjórnklefans er módelið farið að taka á sig mynd.
Veltirofi með gaumljósi, keyptur hjá N1 gerir mögulegt að rjúfa straum án þess að þurfa að aftengja rafhlöðuna. Það minnkar líkur á slysagangsetningu mótorsins.
Til að tengja rofann svo að ljósið virki rétt þurfti að hringja í vin (sem er rafvirki). Vafalítið er líka hægt að finna það á Youtube eins og allt annað.
VARAST þarf að tengja rafhlöðu og hraðastýringu rangt því Þá er mögulegt að steikja allt draslið. Hugsa áður en tengt er í einhverju fikti.
VARAST þarf að tengja rafhlöðu og hraðastýringu rangt því Þá er mögulegt að steikja allt draslið. Hugsa áður en tengt er í einhverju fikti.
Þjónarnir sem ég keypti hafa frekar lítið hreyfisvið. Því þarf að tengja stýristöngina í fjargati við þjón en í nærgati við stýriflöt.
PS. Þessu breytti ég aftur. Tæpir tveir cm í hreyfingu í hvora átt (throw) er fyllilega nóg, a.m.k. til að byrja með.
PS. Þessu breytti ég aftur. Tæpir tveir cm í hreyfingu í hvora átt (throw) er fyllilega nóg, a.m.k. til að byrja með.
Þegar búið er að tengja voltmælirinn lýsir hann rauðum stöfum sem sýna hleðslu hverrar einingar (Li-Po sellu) og lokum heildarhleðslu rafhlöðunnar.
Hér er búið að gagna frá í tæknirými módeldsins. Til að halda loftneti móttakarans límdi ég bút af ytra byrði stýribarka innan á lokið. Loftnetið getur þá leikið þar í þegar lokinu er lyft.
Seglarinr tveir sjást hægra megin á myndinni. Þegar þeim var komið fyrir var fyrst límdur segull í lokið og mótsegullin settur á hann. Dropi af hitalími var síðan settur á réttan stað og lokið lagt aftur. Þá fæst rétt afstaða á mótsegulinn sem festur er á módelið.

Tvær gular rendur voru settar á neðan á módeilð svo auðveldara væri að sjá hvernig það snýr á flugi.
Nú er allt tilbúið og bara að bíða eftri góðu veðri fyrir jómfrúrflugið.
P.S.
Við fyrstu flugtilraunir kom í ljós að þyngdarpunkturinn var of framarlega. Ég stillti hann samkvæmt teikningunni með því að flytja rafhlöðuna aftar og setja hana í miðrýmið. Eftir það flýgur módelið frábærlega og lætur vel að stjórn.