Að hanna útlitið
Það er skemmtilegt að pæla í útliti og skreytingum. Auðvelt er að Googla nafnið á módelinu og sjá fullt að módelum, bæði flottum og ljótum. Ef verið er að smíða "klassískt" módel er e.t.v. meiri ástæða en annars til að taka tillit til upprunalegra hugmynda hönnuðar módelsins. Það er líka gaman að finna alveg nýjar leiðir. Sumum smiðum finnst gaman ef að módelin sem þeir smíða hafa einhver sameiginleg einkenni líkt og væru þau frá sama flugfélagi.
Mestu skiptir að gefa sér góðan tíma, gera margar skissur og vera óhræddur við að prófa að teikna - áður en byrjað er á að klæða.
Mestu skiptir að gefa sér góðan tíma, gera margar skissur og vera óhræddur við að prófa að teikna - áður en byrjað er á að klæða.
Hvað á að klæða
Þá er allt tilbúið undir klæðningu og hægt að áætla hvað mikið efni þarf til verksins.
Byrjum á því sem er einfallt
Neðra byrði á efrivæng er einlitt og slétt. Líklega besta að byrja á að æfa sig þar. Á Youtube eru góðar leiðbeiningar.
Ég mæli sérstaklega með Covering video 1 til 5
Ég mæli sérstaklega með Covering video 1 til 5
Tvílitt efra byrði
Fyrst er að þekja það sem ljósast er og gera ráð fyrir um 5 mm skörun. Rauði liturinn kemur seinna
Þá eru allir hlutir efri vængjarins og veltistýrin klædd.
Að lokum kemur svo skrautið og lakkað með rauðu kraftlakki í götin.
Rauðu geislarnir eru settir á eftir að búið er að ganga frá veltistýrum og líma lamirnar.
Rauðu geislarnir eru settir á eftir að búið er að ganga frá veltistýrum og líma lamirnar.
Nú er efri vængurinn tilbúinn.
Neðra byrði neðri vængjarins er köflótt.
"Ó, er þetta svona keppnis?" spurði afadóttirin.
Gott er að auðvelt sé að sjá hvernig módelð snýr á flugi og hafa greinargóðan mun á efri og neðri hlið þess.
"Ó, er þetta svona keppnis?" spurði afadóttirin.
Gott er að auðvelt sé að sjá hvernig módelð snýr á flugi og hafa greinargóðan mun á efri og neðri hlið þess.
Gæta þarf þess að munstrið passi á lúgum og veltistýrum.
Þegar búið er að snýða bótina er gott að leggja hana á lúguna í vængnum. Þá er hægt að stilla hana af m.t.t. munstursins og tilla henni í miðju með klæðningarjárninu.
Þegar búið er að snýða bótina er gott að leggja hana á lúguna í vængnum. Þá er hægt að stilla hana af m.t.t. munstursins og tilla henni í miðju með klæðningarjárninu.
Neðri vængurinn langt kominn.
Áður en klæðningin hófst var ég búinn að skera fyrir lömunum og hengja allt saman með bráðabyrgðalömum. (sjá smíðalýsingu). Þess vegna gat ég nú fundið rifurnar með nöglinni í gegnum klæðninguna og þurfti aðeins að skera rifu með rakblaði í klæðninguna til að koma alvörulömunum fyrir.

Ég lakkaði festingarnar fyrir tengistykkin milli vængja og tengistykkin sjálf. Ég leitaði svolítið að lakki sem þolir eldsneyti en án árangurs. Á endanum prófaði ég gamla góða Kraftlakkið sem virðast hafa ágætismótstöðu meðan eldsneytið er ekki látið liggja á. Ég lakka þrjár umferðir og læt líða 1 - 3 sólahringa á milli. Lakkið er lengi að ná herslu en kemur vel út.
Til að koma í veg fyrir að lakk fari í skrúfgangana setti ég kennaratyggjó í götin.
Til að koma í veg fyrir að lakk fari í skrúfgangana setti ég kennaratyggjó í götin.
Báðir vængir fullklæddir og komnir með stýrifleti. Nú er hægt að ganga frá lóðningum stýristanga.
Hæðarstýrið tilbúið og nú er það búkurinn. Gott er að muna að klæða með ræmum í kverkar við stél áður en búkurinn er klæddur. Hvíti liturinn á topp og botn kemur fyrst.
Þá er meginröndin komin. Síðar kemur hvít skreytirönd á brún þeirrar rauðu. Það er auðveldara en að setja rauða utan við brún meginrandarinna.
Til að skera jafnbreiða rönd úr klæðningarefninu límdi ég tvö rakblöð sitt hvors vegar á hæfilega þykka balsafjöl. Með þessu áhaldi er hægur vandi að skera rendur úr klæðningarefni.
Ég ákvað að lakka hjólskálar og álhluti með hvítu kraftlakki. Mér sýnist að það ætli að koma vel út.
Vélarrýmið er svo lakkað með rauðu.
Engar leiðbeiningar eru um hvernig festa eigi framrúðuna á módelið. Eftir nokkra leit á vefnum sýndist mér best að fara þá leið að nota klæðningu. Einhver hélt því fram að besta leiðin væri að nota Ultracote og sagðist oft hafa gert það í álíka tilfellum.
Þó svo að ég noti Oracover ákvað ég samt að reyna. Ég byrjaði á að sníða borða af klæðningu, ca 15 mm, eftir flötum glugganum. Síðan festi ég hann með klæðningarjárninu við gluggann. Að því búnu skar ég rifur í það sem útaf stendur og kom glugganum fyrir á módelinu og festi með þvingu.
Þegar ég var búinn að festa flipana við módelið smeygði ég epoxy-lími niður með gluggaendunum innanverðum til að tryggja betur festingu hornanna. Daginn eftir tók ég þvinguna af og sé ekki betur en að árangurinn sé góður.
Til að auðvelda hleðslu móttakararafhlöðunnar gerði ég rauf við fjarstýringarrofann og dró hleðsluvírinn þar í gegn áður en ég festi rofann aftur að lokinni málun.
Tvær skrautrenndur prýða hjólskálarnar sem eru lakkaðar með Kraftlakki. Renndurnar eru úr klæðningu.
Nú er kominn tími til að skrúfa allt saman.
Að lokum er svo bara að koma flugmanninum fyrir. Það er við hæfi að bleikur grís fljúgi Sig Hog Bipe. Hann er festur með frönskum rennilás á rassinum.
MUNDU: Áður en þú ferð að fljúga þarf að stilla þyngdarpunktinn réttann (CG) og prófa alla stýrifleti, stilla færslu þeirra (throw), stilla mótorinn, athuga rafhlöður og drægni fjarstýringar og, og, og ..........
... svo má alltaf smíða aftur það sem einu sinni var smíðað.