Við módelsmíðina sem hér er lýst fylgi ég teikningu Davids Boddington að miklu leyti en mun þó gera fáeinar breytingar. Í fyrsta lagi mun ég styðjast við ljósmyndir af flugvélinni sem flaug yfir Ermasundið hvað varðar stélfleti, búkhjól og burðarvirki vængvíra. Teikning Boddos er gerð með hliðsjón af Bleriot XI eintaki sem smíðað var nokkru síðar þar sem þessir þættir eru lítilega breyttir. Í öðru lagi gerir teikningin ráð fyrir PAW 29 díslelmótor sem er snúið á hvolf en ég mun nota SC 30 FS mótor sem stendur réttur og líkst því meir þriggja strokka ANZANI mótor upprunalegu flugvélarinnar. Þeim breytingum fylgir að einnig þarf að breyta staðsetningu eldsneytistanks sem kallar á aðrar smávægilegar breytingar. Þá mun ég einnig nota nokkru stærri tank en Boddo gerði ráð fyrir til að tryggja ákjósanlegt flugþol.
Meira: | Módelið | Smíðin | Flugið |
Meira: | Módelið | Smíðin | Flugið |
For information, details and measurements, mail to [email protected]
stab_plan.pdf | |
File Size: | 218 kb |
File Type: |