Mini Jazz er balsamódel smíðað með hefðbundnum hætti. Það var hannað af Malcolm Corbin og kom fram 1997. Módelið er frekar lítið, með 88 cm vænghaf og gerir ráð fyrir 0.10 - 0.15 cu glóðarkertismótor.
Ég bind vonir við að módelið henti sem fyrsta 3D flugmódel fyrir flugmann með takmarkaða reynslu af slíku flugi.
Hægt er að kaupa teikningu hjá My Hobby Store í Bretlandi fyrir £12.50 auk sendingarkostnaðar. Þar er reyndar líka hægt að kaupa efnispakka, eða jafnvel "kit" ef áhugi er fyrir því.
Ég keypti aðeins teikninguna og ætla að smíða módelið frá grunni að hætti scrap-smíða. Balsann kaupi ég í Tómstundahúsinu en flesta aðra íhluti s.s. tank hjól og klæðningarefni kaupi ég frá Pegasus Model.
Mini Jazz rc model