Hér að neðan eru hugleiðingar og myndir af smíðinni. Einungis er stiklað á stóru og mörgu sleppt. Það er því mikilvægt að fylgja leiðbeiningunum sem fylgdu módelinu til hins ítrasta. Vonandi koma þessar hugleiðingar að gagni. Mikilvægasta ráðið sem hægt er að gefa módelsmið er hins vegar að mun eftir því að HUGSA. Taktu þér tíma til þess að horfa og hugsa um eins mörg skref fram í tímann og mögulegt er. Því betur sem hvert skref er ígrundað því færri mistök eru gerð. Sig hog bipe build
Hvað er í kassanum?
Sig Hog Bipe, rc model plane build log
Það er ráðlegt að byrja á að fara yfir hlutalistann sem fylgir fremst i leiðbeinignunum og finna allt sem þar er upp talið. Gott er að merkja hvern hlut með mjúkum blýanti.
Þó svo þetta virðist í fyrstu vera tímafrekt mun sá tími skila sér þegar kemur að því að finna hluti meðan á smíðinni stendur.
Þá fylgir í kaupbæti aukinn skilningur á uppbyggingu módeldsins sem er gott veganesti í fyrirliggjandi smíðavinnu.
Þó svo þetta virðist í fyrstu vera tímafrekt mun sá tími skila sér þegar kemur að því að finna hluti meðan á smíðinni stendur.
Þá fylgir í kaupbæti aukinn skilningur á uppbyggingu módeldsins sem er gott veganesti í fyrirliggjandi smíðavinnu.
Skrúfur, rær, tengsli o.fl.
Ekki er síður mikilvægt að finna og flokka allt skrúfudótið. Að finna til, flokka og merkja dregur verulega úr slysahættu sem felst í að líma ranga blindró eða rugla saman mislöngum skrúfum. Einföld leið til að merkja allt draslið er að nota límband sem hægt er að skrifa á. Límdu tvöfallda lengd á vinnuborðið, merktu, snúðu við og raðaðu stykkjunum á límhliðina og leggðu límbandið saman. Einfallt og sparar tíma seinna.
Forsniðnir hlutir
Til að minnka fyrirferðina getur verið gott að losa laserskornu krossviðarstykkin úr spjöldunum. Stönsuðu balsahlutirnar svo sem rifin í vængina eru hins vegar best geymdi í spjöldunum. Til að losa stykkin úr spjöldunum getur verið gott að búa sér til hníf úr litlu rakblaði. Rakblaðið er þunnt og því einfalt að smeygja því í gegnum spjaldið. Til að forðast að skera sig er hentugt að líma tvo afgangs balsabúta í 90 gráðu horni á blaðið eins og sést á myndinni. Áhaldinu er svo beitt líkt og plógi.
Mótorfestingar og eldveggur
Í upphafi þarf að merkja og bora fyrir mótorfestingunum á eldvegginn. Mikilvægt er að gefa sér góðan tíma til að skilja vel staðsetninguna á mótornum, bæði lóðrétta og lárétta. Ekki þarf að hafa miklar áhyggjur af niðurtoginu (down thrust) þar sem það er innbyggt í búkhliðarnar sem eldveggurinn límíst í. Eftir að búið var að staðsetja, bora og koma blindrónum fyrir kom í ljós að ein þeirra var gölluð og forskrúfaðist auðveldlega. Reyndar eru blindrærnar og skrúfurnar sem eiga að halda mótorfestingunum frekar veigalitlar og ekki í samræmi við stálboltana sem halda eiga mótornum á festingunum.
Til að leysa málið keypti ég stálbolta, samskonar og festa mótorinn við mótorfestingarnar (4mm), boraði blindrærnar út og límdi viðeigandi rær aftan á þær með Epoxy lími.
Samlímdar búkhliðar
Til að líma saman tvöföldu búkhliðarnar notaði ég 2,5 m langa ál-réttskeið og hallamál af hefbundinni stærð. Hér skiptir öllu máli að tryggja sléttan flöt og ekki síður að vera nákvæmur þegar áleggið er stillt af. Gættu vel að sætinu fyrir neðri vænginn og einnig að falsinu sem er ætlað búkbotninum. Þegar búið er að stilla allt af og þvinga er gott að hreinsa vel umframepoxyið sem sest í falsið, vængsætið og líka sætið þar sem gólfið undir eldsneytistankinn kemur til með að vera.
Festingar fyrir efri væng
Það er nauðsynlegt að vanda vel staðsetningu rammanna sem halda kubbunum sem mynda sæti fyrir efrivængsfestingarnar. Gott er að átta sig á að það eru forboruðu götin í búkhliðinni og álstífunum sem stjórna staðsetningu efri vængjarins. Vera má að álstífurnar séu mislangar fyrir neðan gat. Ef einhver endinn þvælist fyrir er óhætt að stytta hann til jafns við hina. Það hefur ekki áhrif á staðsentingu gatsins m.t.t. efri hluta álstífunnar.
Búkurinn settur saman
Hér skiptir máli að vanda fyrstu límingarnar. Epoxylímið gefur góðan tíma til að stilla af. Límið tekur sig yfir nóttina. Ekki er hægt að gera nema eitt í einu og því nægur tími til að vanda verkið.
Raða öllu saman
Þegar eldveggurinn og F3 eru komin á sinn stað er hægt að raða búknum saman og teipa allt í skorður. Límbandið sem ég notaði reyndist afburðavel við alla smíðina og mæli ég eindregið með því. (Tesa professional 4334)
Muna stélið
Sig Hog Bipe, rc model plane build log
Ekki gleyma að kíkja, mæla og skoða áður en allt er límt. Sérstaklega er ástæða til að fara að ráðleggingum í leiðbeiningum og skoða vel afturendann því þar ertu að smíða sætið fyrir hæðarstýrið og ekki gott ef það hallar. Laga núna og líma svo með CA. Gott að nota meðalþunnt en ekki of þunnt hér.
Hugsa fram í tímann.
Gæta þarf vel að því að sætin fyrir þekjuklæðninguna séu hrein. Hve vel tekst til með balsaklæðninguna á efri hluta búksins hefur mikið að segja um útlit módelsins þegar verkinu er lokið.
Eldsneytistankurinn
Þá er að koma eldsneytistankinum fyrir. Ég ákvað að ganga frá tankinum áður en lengra er haldið, jafnvel þó svo að leiðbeiningarnar geri ráð fyrir að honum sé smeygt í sæti sitt miklu síðar í smíðinni. Alltaf gott að hafa góða aðstöðu til að vinna og engar líkur á að ég muni skipta um tanka í módelinu meðan það er í heilu lagi hvort eð er.
14 oz í stað 12 oz
Ég valdi 14 oz Dubro tank því mér sýndist á teikningunni að hann kæmist fyrir þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir 12 oz tanki.
Ég bætti þriðja rörinu við til áfyllingar. Alltaf flott að hafa stút upp úr húddinu til að dæla eldsneytinu á, í stað þess að vera að slíta af slöngur. Útbúa þarf tappa því í tankinum verður bakþrýstingur frá hljóðkútnum.
Ég bætti þriðja rörinu við til áfyllingar. Alltaf flott að hafa stút upp úr húddinu til að dæla eldsneytinu á, í stað þess að vera að slíta af slöngur. Útbúa þarf tappa því í tankinum verður bakþrýstingur frá hljóðkútnum.
Stífaður af
Ég notaði ósköp venjulegt einangrunarplast til að festa tankinn og límdi það með Griplími. Þorði ekki að nota annað af ótta við að það æti upp plastið. Virðist virka fínt.
Lendingarhjólin
Ég las á netinu að margir færi hjólafestinguna framar í módelið til að koma í veg fyrir að það steypist fram yfir sig í flugtaki eða lendingu. Ég ákvað að treysta hönnuðinum og breyta engu.
Botn á frambúkinn
Krossviðsbotninn á frambúkinn er nokkuð stífur og erfitt að sveigja hann að boga búksins. Ég smíðaði skapalón til að þvinga botnplötuna á og gufaði hana síðan með gufugræju heimilisins í nokkra stund. Með þessu tókst mér að ná fram nokkurri sveigju í plötuna sem auðveldar að koma henni fyrir. Ég ákvað engu að síður að bíða með að líma hana á sinn stað vegna þess að ég vil hafa góða aðkomu til að ganga frá vængfestingum neðri vængjarins þegar þar að kemur. Mér sýnist í leiðbeiningunum að það sé nokkuð snúið. Þar sem ég sé enga þörf á að líma botninn í strax ætla ég að fresta því þar til miklu seinna.
Þekjuklæðning
Þegar búið er að líma burðarstrengina á sinn stað þarf að undirbúa klæðninguna vel. Að klæða með balsaþynnum er afar skemmtilegt ef vel tekst til en hábölvað þegar allt fer úr skorðum. Mikilvægt er að gefa sér góðan tíma með sandpappír til að tryggja að svæðið sem klæða á sé tilbúð til klæðningar. Gæta þarf vel að öllum stöðum þar sem brúnir klæðningarinnar eiga að koma. Oftast eru ljótu mistökin þar sem samsetningar klikka.
Að bleyta balsa
Best er að sníða klæðningarstykkin alveg til áður en nokkur hluti er límdur. Til að auðvelda sveigju á klæðningunni er gott að væta hana undir kalda krananum eða strjúka ytra byrðið með blautum klút. Eftir það verður klæðningin mjög sveigjanleg, auðvelt að sníða og hægt að koma henni fyrir á sinn stað og festa með límbandi. Þegar balsinn þornar verður hann alveg jafn stífur og áður og heldur því lagi sem hann þornaði í. Þá er hægt að losa límbandið og koma klæðningunni fyrir með viðeigandi lími. Ég nota ýmist Bison Balsa lím, Grip eða CA allt eftir því hve langan tíma ég þarf til að koma klæðningunni á sinn stað og hvort hægt er að koma við þvingum eða límbandi eða halda þarf með höndum meðan límið þornar.
Vængstífur
Leiðbeiningar gera ráð fyrir allstórum götum fyrir vængstífurnar sem halda efri vængnum. Mér finnst götin óþarflega stór og skar eins smár rifur og ég gat. Heimatilbúin þjöl úr samlímdum sandpapprí kom í góðar þarfir
Mótorinn
Þá er að smíða í kringum mótorinn. Ég bætti við einum þverbita til að búa til stuðning fyrir áfyllingarrörið. Þá gerði ég gat á vinstri kjálkann til að koma nálarstillisrkúfunni fyrir. Mótorinn sem ég keypti er með nálina aftan við mótorinn til að auðvelda aðgengi að henni. Ég þurfti líka að taka úr vinstri kjálkanum fyrir hljóðkútinn.
Efri vængur
Nú er skrokkurinn frá og komið að efri vængnum. Tími til að taka vel til á borðinu og muna að vanda sig. Gættu vel að því að pinna sperruna alveg beina og eftir teikningunni. Það skiptir líka miklu máli er að götin í krossviðarmiðsperrunum séu nákvæmlega á miðlínu. Ef annað víkur til hægri eða vinstri sem nemur hluta úr mm mun vængendinn færast fram eða aftur um margfalda þá vegalengd.
Það skiptir máli að hælarnir á rifjunum sitji vel niðri á borðinu þegar rifin eru límd á grunnsperruna. Ef þeir gera það ekki verður afturbrún vængjarins hlykkjótt.
Það getur verið hentugt að smiða sér "hæl" úr balsa sem passar undir afturbrún vængjarins. Honum má þá renna undir neðri klæðninguna við hvert rif meðan límt er með CA-lími. Hællinn þrýstir klæðningunni þá að rifinu.
Klæðningin
Ef klæðningin er stíf er óhætt að væta hana aðeins á ytra byrði með vatni. Meðan hún er deig er hún mun meðfærilegri.
Miðjukubburinn
Sig Hog Bipe, rc model plane build log
Taktu eftir miðjukubbnum sem styður við frambrún vængjarins. Hér sýnist mér að sé ein af fáum "villum" í leiðbeiningunum. Það er ekki mögulegt að koma þessum kubbi fyrir eins og lagt er til. Ég klauf kubbinn lárétt í tvennt og límdi hann saman á staðnum.
Ég vék smávægilega frá fyrirmælum hér og smíðaði balsakubba sem fylltu upp í rýmin umhverfis skrúfugötin í vængnum. Mér fannst brún gatanna í klæðningunni of veikbyggð ef ekkert styddi við hana.
Ég vék smávægilega frá fyrirmælum hér og smíðaði balsakubba sem fylltu upp í rýmin umhverfis skrúfugötin í vængnum. Mér fannst brún gatanna í klæðningunni of veikbyggð ef ekkert styddi við hana.
Neðri vængurinn
Nú kemur reynslan af smíði efri vængjarins að góðum notum. Til viðbótar þarf að gæta sérstaklega vel að hallanum á innsta rifinu í hvorum væng. EN það er ekki síður miklvægt að tryggja að innsta rifið sé alveg hornrétt á vængsperruna. Ef það skeikar einhverju verður vængurinn ekki beinn heldur fram- eða aftursveigður um miðju. Þetta þarf að vera mjög nákvæmt á báðum vænghlutum.
Samsetning neðri vængjar
Þegar kemur að samsetningunni skaltu hiklaust smíða undirstöðu í réttri stærð. Þessi er úr balsaafgöngum og var smíðuð á tveimur mínútum.
Nú er gott að vinna á korkborði og geta nælt undirstöðuna niður með t-prjóni.
Nú er gott að vinna á korkborði og geta nælt undirstöðuna niður með t-prjóni.
Epoxy
Epoxy-límið komið á sinn stað og klemmurnar á. Nú er bara að bíða í sjö tíma.
Vængfestingin
Nú kemur sér vel að vera ekki búinn að líma botninn á frambúkinn. Auðvelt er að komast að og ef maður á tvo tommubora af réttri stærð er auðvelt að merkja fyrir götunum fyrir pinnana.
Hæðarstýrið
Auðvelt og skemmtilegt að smíða grindina. Mundu að vanda þig engu að síður og pússa flötinn með pússklossa. Það er líka mikilvægt að fara að fyrirmælum um að líma saman og pússa klæðninguna áður en hún er límd á.
Límingin
Eftir smá mistök ákvað ég að nota bara venjulegt Griplím til að líma balsaklæðninguna á grindina. Nægur tími og hægt að líma báðar hliðar í einu. Hér er gott að eiga stórar orðabækur sem ekki nýtast til annars á upplýsingatækniöld.
Upp komast svik um síðir
Úps - nú kemur í ljós að samlíming á búknum hefur ekki verið gallalaus. Verja hefði átt meiri tíma í að gæta að ferhyrningi á afturenda búskins í upphafi.
Lagað
Með pússklossa og nokkurri vandvirkni mátti laga sætið fyrir hæðarstýrið. Þetta lítur betur út. Ef þetta er gert þarf að gæta sína mjög á að fara ekki lengra út í vitleysuna. Nota viðmiðunarstrik og ákveða nákvæmleg hvað á að pússa burt og hvernig - áður en pússklossanum er beitt.
Stoðtækjasmíði
Til að tryggja hornrétta límingu smíðaði ég tvo hornrétta stuðningsvinkla. Annar er reyndar sá sami og ég notaði sem undirstoð við samsetningu neðri vængjarins. Þegar þeir voru klemmdir á sinn stað límdi ég stélið með griplími, - nægur tími. Að þessu loknu er auðvelt að smíða hliðarstýrið og koma því á sinn stað.
Til viðbótarstyrkingar límdi ég grannan skálista í kverkina neðan stélflatarins þegar stélið var fullbyggt.
Til viðbótarstyrkingar límdi ég grannan skálista í kverkina neðan stélflatarins þegar stélið var fullbyggt.
Hjólskálarnar
Ég veit ekki hvort það eru leiðbeiningarnar eða gáfnarfar mitt en það tók mig nokkrar endurtekningar á lestri leiðbeininga áður en ég kom heim og saman hvernig smíða átti hjólskálarnar. Vonandi skýrir meðfylgjandi mynd það að einhverju leyti. Gæta þarf vel að því að götin séu eins staðsett á báðum innri hjólskálunum svo sú hægri verði í flútti við þá vinstri þegar báðar eru komnar á flugvélina.
Lamirnar og stjórnfletir
Ég velti fyrir mér hvenær væri rétti tíminn til að hengja stjórnfletina á. Ekki er gott að ganga frá fjarstýriningu áður en stjórnfletir eru komnir á sinn stað. Líklega er samt auðveldara að klæða módelið áður en stjórnfletir eru settir á. Fastlímdu lamirnar (Easy hings) leyfa manni hins vegar ekki að setja stjórnfleti á og taka þá af aftur. Til að leysa málið bjó ég mér til eftirlíkingar af "easy hings" úr venjlegri ljósritunarglæru sem ég límdi límbandið góða á, beggja vegna. Síðan klippti ég úr ferhyrninga sömu stærðar og lamirnar sem fylgdu. Með þessum "gervilömum" festi ég svo stjórnfletina á. Ég notaði T-prjóna til að festa þær ef þurfti. Með þessu móti get ég tekið stjórnfletina af aftur þegar kemur að klæðningu og á alvöru lamirnar óþvældar, tilbúnar til lokaísetningar eftir klæðningu.
Vængservó
Til að koma veltistýrisþjóninum (!!) fyrir í vængnum þurfti að skera aðeins úr bitanum sem lokið skrúfast á.
Hvíti hólkurinn til hægri á myndinni er einfaldlega búinn til úr venjulegum pappír og tillt í vængrifin með límdropa. Hann er ætlaður til að auðvelda frágang rafmagnsleiðslunnar.
Hjálpartæki
Það er alltaf gaman að smíða sín eigin hjálpartæki. Þessi einfalda jafnvægisvog er smíðuð úr 16 mm rafmagnsrörum. Beygjurnar keyptar tilbúnar en T-stykkin límd saman.
Virkar vel fyrir tvíþekju sem venjulegar flugvélar.
Virkar vel fyrir tvíþekju sem venjulegar flugvélar.
Fyrsta jafnvægismæling
Nú er komið að því að staðsetja rafhlöðupakkann. Gott að vita hvernig jafnvægið í módelinu er.
Líklega frekar framþung en afturþung. Rafhlöðupakkinn verður því aftan við jafnvægispunktinn. Klæðningin mun einnig leggja meiri þyngd á afturhlutann og engin ástæða til að örvænta enn sem komið er.
Líklega frekar framþung en afturþung. Rafhlöðupakkinn verður því aftan við jafnvægispunktinn. Klæðningin mun einnig leggja meiri þyngd á afturhlutann og engin ástæða til að örvænta enn sem komið er.
Fleiri hjálpartæki
Slippur eða stóll sem hentar búklaginu, fóðraður með gúmmílista ætlaður til glerísetningar. 1 klst að smíða en gerir vinnuna við módelið miklu skemmtilegri.
Sniðið á aftari hlutanum var miðað við F6 en það fremra við meðaltal eldveggjar og F2. Mundu að gera ráð fyrir balsaklæðningunni og sjálflímandi gúmmílistanum.
Sniðið á aftari hlutanum var miðað við F6 en það fremra við meðaltal eldveggjar og F2. Mundu að gera ráð fyrir balsaklæðningunni og sjálflímandi gúmmílistanum.
Sig Hog Bipe, rc model plane build log
Sé mest eftir að hafa ekki smíðað þennan stól miklu fyrr.
Þjónarnir
Þá er að koma þjónunum og rafhlöðupakkanum fyrir í búknum. Þetta sýnist einfallt. Rafhlöðupakkinn aftan við æskilega þyngdarmiðu til að jafna stöðuna frá fyrstu mælingu.
(Við lokastillingu á þyngdarpunkti flutti ég rafhlöðuna framar og hengdi hana neðan á gólfið undir tankinum með frönskum rennilás)
(Við lokastillingu á þyngdarpunkti flutti ég rafhlöðuna framar og hengdi hana neðan á gólfið undir tankinum með frönskum rennilás)
Önnur jafnvægismæling
Sig Hog Bipe, rc model plane build log
Lítur vel nú. Nú er bara að festa þjónana og rafhlöðupakkann.
Þáttaskil
Sig Hog Bipe, rc model plane build log
Þá er trésmíði að mestu lokið og vélbúnaður kominn á sinn stað. Næst er að undirbúa klæðningu. Nú er tími til að taka til í draslinu, rýma borðið og ryksuga. Að þurka ryk og ryksuga er ekki síður mikilvægt fyrir klæðningu en sprautun.
Það er afskaplega svekkjandi að sjá eitt rykkorn undir klæðningunni þegar búið er að hita og strekkja. Ekki halda að klæðningin feli neitt - hún er líkari lakki hvað það varðar að kalla fram og ýkja misfellur.
Sig Hog Bipe
Það er afskaplega svekkjandi að sjá eitt rykkorn undir klæðningunni þegar búið er að hita og strekkja. Ekki halda að klæðningin feli neitt - hún er líkari lakki hvað það varðar að kalla fram og ýkja misfellur.
Sig Hog Bipe