Í módelsmíðinni sem hér er lýst er stuðst við teikningu eftir David Boddington. David var goðsögn í lifandi lífi í heimi flugmódelsmiða og hannaði og teiknað fjölda flugmódela. Hann var jafnan kallaður Boddo og lést árið 2010. Í ágústhefti Radio Control Model Flyer frá árinu 2011 er sagt frá þessari teikningu og enn er hægt að fá hana keypta á: http://adhpublishing.com/shop/store/products/bleriot-xi-plan-mf257/
Í greininni er sagt frá því að teikningin hafi fundist í dóti Boddos að honum látnum og sonur hans hafi komið með hana á flugsamkomu sem sérstaklega var haldin til minningar um Boddo. Áður hafði Boddo teiknað aðra minni útgáfu af Bleriot XI módeli og fylgja greininni myndir af smíði þess. Í greininni er einnig sagt frá því að líklega hafi Boddo aldrei náð að klára hönnunina til hlítar, til að mynda vanti upplýsingar um hreyfisvið stýriflata. Þrátt fyrir allnokkra leit hef ég ekki fundið frásagnir á netinu af smíði 60“ Bleriot XI módels efir teikningu Boddos.
Meira: | Módelið | Smíðin | Flugið |