Ekki gleyma að fínpússa alla hluti (7 hlutir) áður en þú byrjar að klæða. Það er líka mikilvægt að ryksuga og þurka allt ryk áður en byrjað er því rykkorn undir klæðningu getur verið mjög áberandi.
Vélarhlífina lakkaði ég að innan með kraftlakki enda úr glæru plasti.
Á YouTube má finna margar góðar leiðbeiningar um klæðningu svo ég ætla ekki að skrifa ítarlegar lýsingar hér.
Gott er þó að horfa til þess að velja liti og útlit þannig að auðvelt sé að greina hvernig módelið snýr á flugi, t.d. að efri og neðri hlið séu auðþekkjanlegar hver frá annarri.
Gott er þó að horfa til þess að velja liti og útlit þannig að auðvelt sé að greina hvernig módelið snýr á flugi, t.d. að efri og neðri hlið séu auðþekkjanlegar hver frá annarri.